Heimar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 39 keypti Heimar hf. („Heimar“) 5.000.000 eigin hluti að kaupverði 153.208.020 kr. í samræmi við eftirfarandi:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
23.09.2024 10:41 1.000.000 30,3 30.281.820
24.09.2024 09:43 1.000.000 30,3 30.281.820
25.09.2024 10:21 1.000.000 30,8 30.781.520
26.09.2024
09:35
1.000.000
30,8
30.781.520
27.09.2024
09:46  1.000.000  31,1 31.081.340
Samtals 5.000.000 153.208.020

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 16. september 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins félagsins 2025.

Heimar átti 3.000.000 hluti fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 8.000.000 hluti, eða um 0,44% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 243.553.780 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythorb@heimar.is