Landsbankinn hf.: Græn skuldabréfaútgáfa í evrum


Landsbankinn lauk í dag sölu á grænum skuldabréfum til fimm ára að fjárhæð 300 milljónir evra. Um er að ræða fimmtu grænu skuldabréfaútgáfu bankans í evrum. Skuldabréfin bera 3,75% fasta vexti og voru seld á kjörum sem jafngilda 155 punkta álagi á miðgildi vaxtatilboða í vaxtaskiptasamningum á markaði.

 Heildareftirspurn nam yfir 1 milljarði evra frá yfir eitt hundrað fjárfestum frá Bretlandi, Norðurlöndunum, meginlandi Evrópu og Asíu.

Skuldabréfin verða gefin út undir EMTN-útgáfuramma bankans með vísan í sjálfbæra fjármálaumgjörð bankans sem vottuð er af Sustainalytics. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í írsku kauphöllinni þann 8. október 2024.

Umsjónaraðilar voru ABN AMRO Bank, J.P. Morgan, Natixis og Nomura.