Leiðrétting: Hagar hf.: Útboð á skuldabréfum 9. október 2024


Rangur uppgjörsdagur var í texta upphaflegrar tilkynningar. Uppgjör viðskiptanna mun fara fram föstudaginn 18. október 2024. Auk þess var lokagjalddagi HAGA161127 sagður 16. október 2027 en verður í raun 16. nóvember 2027.


Hagar hf. efna til útboðs á skuldabréfum miðvikudaginn 9. október 2024. Boðnir verða til sölu skuldabréf í flokknum HAGA120926 1 og í nýjum skuldabréfaflokki HAGA161127.

HAGA 120926 1 er almennur skuldabréfaflokkur sem ber fljótandi vexti tengda 1 mánaða REIBOR að viðbættu 1,30% álagi með lokagjalddaga þann 12. september 2026. Útboðið verður með hollensku fyrirkomulagi þar sem öll skuldabréfin verða seld á sama verði eða hæsta samþykkta álagi ofan á 1 mánaða REIBOR. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 2.000 m.kr. í flokknum.

HAGA 161127 er almennur skuldabréfaflokkur sem ber fasta 8,60% vexti með lokagjalddaga þann 16. nóvember 2027. Útboðið verður með hollensku fyrirkomulagi þar sem öll skuldabréfin verða seld á sama verði.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útboðinu og kynningu þess fyrir hugsanlegum fjárfestum. Skuldabréfin eru gefin út í 20 m.kr. nafnverðseiningum og sótt verður um skráningu þeirra í Kauphöll. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.

Ekki er um almennt útboð að ræða og útboðið er undanþegið gerð lýsingar á grundvelli a, c og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði og 1. mgr. 3. gr. laga nr. 14/2020 um sama efni. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu skuldabréfaflokksins og töku skuldabréfanna til viðskipta í Kauphöll verða birt á vefsíðu félagsins: https://www.hagar.is/fjarfestar/skuldabrefautgafa/

Skila skal inn tilboðum á netfangið utbod@fossar.is fyrir klukkan 17:00 miðvikudaginn 9. október 2024. Uppgjör viðskipta fer fram föstudaginn 18. október 2024.

Nánari upplýsingar veita:

Ásgrímur Gunnarsson, Fossar fjárfestingabanki hf., asgrimur.gunnarsson@fossar.is, s: 522 4000.
Arnar Geir Sæmundsson, Fossar fjárfestingabanki hf. arnar.saemundsson@fossar.is

Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga, geg@hagar.is