Aukin sætanýting og yfir 90% stundvísi


Flugfélagið Play flutti 144.746 farþega í september 2024, sem er 14,7% samdráttur á farþegafjölda frá fyrra ári þegar Play flutti 163.784 farþega. Sætanýting jókst hins vegar úr 85,0% í september í fyrra í 87,3% í september í ár.

Af þeim farþegum sem flugu með Play í september voru 28,3% á leið frá íslandi, 35,8% voru á leið til Íslands og 35,9% voru tengifarþegar (VIA).  Hlutdeild Play á heimamarkaði jókst um 9% á milli ára, en farþegum sem flugu frá Íslandi fjölgaði úr nærri 38 þúsund í september í fyrra í nærri 41 þúsund í ár.

Sætanýting á Norður-Ameríkuleiðum Play náði 89,7%, og hefur aldrei verið hærri í einum mánuði. Þar að auki jókst sætanýting á leiðum Play til borgaráfangastaða í Evrópu um 6%.

Stundvísi Play í september var 90,5%, en var 85,1% í september í fyrra.

Nýir áfangastaðir og nýtt samstarf við Sabre

Play hóf miðasölu á áætlunarflugi til Valencia á Spáni og Pula í Króatíu í september. Þar að auki fjölgaði Play ferðum til Split á næsta ári, sem gerir það að verkum að áætluð verða tvö flug í viku til króatísku borgarinnar þegar mest lætur.

Play tilkynnti einnig um nýtt samstarf við fyrirtækið Sabre. Samstarfið gerir ferðaskrifstofum kleift að ná beinni sölutengingu við leiðakerfi Play í gegnum Sabre. Mun þetta hafa í för með sér að söluleiðir Play aukast til muna á markaðssvæðum flugfélagsins í Norður-Ameríku og Evrópu.

Einar Örn Ólafsson, forstjóri Play:

„Við sáum talsverðar framfarir í rekstri félagsins í septembermánuði þrátt fyrir að farþegum hafi fækkað á milli ára. Sætanýtingin jókst til að mynda um 2,3 prósentustig, og hlutdeild okkar á heimamarkaði heldur áfram að aukast, sem er merki um hversu ánægðir Íslendingar eru með okkar þjónustu. Við þurftum að takast á við ýmsar áskoranir í sumar sem sneru að tengiflugi okkar yfir Atlantshafið. Við höfum minnst á það áður að framboð á beinum flugferðum yfir Atlantshafið hefur aukist talsvert undanfarið ár. Við höfum brugðist við með því að draga úr okkar framboði á Norður-Ameríkuleiðunum okkar. Þá hafa horfurnar einnig batnað umtalsvert inn í veturinn þar sem dregið hefur talsvert úr framboði á beinu flugi yfir hafið. Þegar litið er til okkar aðgerða og að dregið hefur úr framboði, gerum við ráð fyrir að það muni skila sér í betri einingatekjum á komandi mánuðum.

Við höfum bætt nýjum sólarlandaáfangastöðum við leiðakerfið okkar sem ættu að skila góðri niðurstöðu fyrir okkur á næsta ári. Við höfðum greint frá því að við myndum fara þá leið að draga úr framboði á ferðum til Norður-Ameríku en á móti myndum við auka ferðir til sólarlandaáfangastaða sem hafa skilað betri niðurstöðu fyrir okkur.

Þá heldur flugrekstrarsviðið okkar áfram þeim upptekna hætti að skila stundvísi flugfélagsins okkar í hæstu hæðum. Það gerir það að verkum að enn einn mánuðinn er Play stundvísasta flugfélagið sem flýgur frá Keflavíkurflugvelli. Við erum afar stolt af þeirri niðurstöðu og munum að sjálfsögðu kappkosta við að halda þeim titli.“

Viðhengi



Attachments

Traffic Report September 2024