Festi birtir uppgjör sitt fyrir 3. ársfjórðung 2024 eftir lokun markaða miðvikudaginn 30. október næstkomandi.
Afkomufundur með markaðsaðilum 31. október kl. 8:30.
Afkomufundur fyrir markaðsaðila verður haldinn fimmtudaginn 31. október 2024 kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10 – 14 í Kópavogi. Á fundinum munu Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi, og Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Festi, kynna afkomu samstæðunnar á þriðja ársfjórðungi og svara spurningum.
Fundinum verður einnig streymt beint á vefsíðu félagsins þar sem skráning á fundinn fer jafnframt fram: https://www.festi.is/tenglar/uppgjor-3f-2024. Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur með því að senda tölvupóst á netfangið fjarfestatengsl@festi.is. Spurningum verður svarað að kynningu lokinni.
Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Festi: https://www.festi.is/fjarhagsupplysingar.