Eimskip birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs 2024


Eimskipafélag Íslands hf. birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs eftir lokun markaða þriðjudaginn 5. nóvember 2024. 

Eimskip býður fjárfestum og markaðsaðilum til fundar þar sem Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri og Rósa Guðmundsdóttir, fjármálastjóri munu kynna uppgjörið. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 6. nóvember nk. kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins Sundabakka 2, 2. hæð.  

Fundurinn verður einnig sendur út í gegnum fjárfestasíðu félagsins www.eimskip.com/investors. Þar verður útbúinn sérstakur hlekkur áður en fundur hefst. 

Fjárfestum er velkomið að senda spurningar fyrir fundinn á netfangið investors@eimskip.com. 

Uppgjörsgögn og upptöku verður hægt að nálgast á fjárfestasíðu Eimskips, www.eimskip.is/investors. 

Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Birna Björnsdóttir, forstöðumaður fjárstýringar og fjárfestatengsla, sími: 844 4752, netfang: investors@eimskip.com