Landsbankinn hf.: Útboð sértryggðra skuldabréfa


Landsbankinn mun halda lokað útboð á sértryggðum skuldabréfum miðvikudaginn 6. nóvember kl. 15:00. Boðinn verður til sölu verðtryggði flokkurinn LBANK CBI 30 og óverðtryggði flokkurinn LBANK CB 29.

Í tengslum við útboðið fer fram skiptiútboð þar sem eigendur verðtryggða flokksins LBANK CBI 24 eiga þess kost að selja bréf í flokknum gegn kaupum á skuldabréfum í ofangreindu útboði. Verð skuldabréfanna er fyrirframákveðið og er 100.

Áætlaður uppgjörsdagur er 13. nóvember 2024.

Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A+ með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.

Markaðsviðskipti Landsbankans hafa umsjón með útboðinu. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar í síma 410-7330 eða með tölvupósti, verdbrefamidlun@landsbankinn.is.