Fossar fjárfestingarbanki hf. lauk víxlaútboði í dag. Bankanum bárust tilboð að nafnverði 1.080 m.kr. á bilinu 9,25% - 9,45% flötum vöxtum, þar sem vegnir meðalvextir voru 9,39%.
Samþykkt tilboð í 6 mánaða víxlaflokkinn FOS 25 0530 voru samtals 1.000 m.kr. á 9,45% flötum vöxtum.
Umsjón með útboðinu höfðu markaðsviðskipti Fossa fjárfestingarbanka.
Sótt verður um töku víxlanna til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Uppgjörsdagur viðskiptanna er 29. nóvember 2024.
Nánari upplýsingar:
Ernir Jónsson
Fossar fjárfestingarbanki
Sími: 832-4002
Netfang: ernir.jonsson@fossar.is
Ásgrímur Gunnarsson
Fossar fjárfestingarbanki
Sími: 832-4040
Netfang: asgrimur.gunnarsson@fossar.is