Veðskuld III hs. – Birting lýsingar


Veðskuld III hs., kt. 540717-9900, Katrínartúni 2, 105 Reykjavík, hefur birt lýsingu sem samanstendur af verðbréfalýsingu dagsettri 25. nóvember 2024 og útgefandalýsingu dagsettri 25. nóvember 2024 (saman nefnt lýsingin). Lýsingin, sem staðfest hefur verið af fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands, er birt í tengslum við umsókn um töku skuldabréfaflokksins VEDS3 17 01 til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland hf.

Lýsingin er á íslensku og er birt á rafrænu formi á vef Kviku eignastýringar hf., rekstraraðila Veðskuldar III hs. https://www.kvikaeignastyring.is/serhaefdir-sjodir/vedskuld-iii

Nasdaq Iceland hf. hefur staðfest töku skuldabréfa í flokknum VEDS3 17 01 að nafnverði 6.195.722.129 íslenskra króna til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. Fyrsti viðskiptadagur er þann 28. nóvember 2024.

Frekari upplýsingar má fá á skrifstofu Kviku eignastýringar að Katrínartúni 2, 105 Reykjavík.

Viðhengi



Attachments

Vedskuld-III-Utgefandalysing Vedskuld-III-Verdbrefalysing