Sjóvá - Ársuppgjör 2024


Helstu niðurstöður úr ársuppgjöri Sjóvá-Almennra trygginga hf. fyrir árið 2024

4.241 m.kr. hagnaður og samsett hlutfall 96,2% á árinu 2024

Fjórði ársfjórðungur 2024

  • Hagnaður af vátryggingasamningum fyrir skatta 313 m.kr. (4F 2023: 699 m.kr.)
  • Hagnaður af fjárfestingastarfsemi fyrir skatta 2.679 m.kr. (4F 2023: 1.890 m.kr.)
  • Hagnaður tímabilsins 2.812 m.kr. (4F 2023: 2.321 m.kr.)
  • Ávöxtun fjárfestingareigna í stýringu 5,4% (4F 2023: 4,4%)
  • Samsett hlutfall 96,3% (4F 2023: 91,3%)

Árið 2024 og horfur fyrir árið 2025

  • Hagnaður af vátryggingasamningum fyrir skatta 1.283 m.kr. (2023: 1.695 m.kr.)
  • Hagnaður af fjárfestingarstarfsemi fyrir skatta 3.435 m.kr. (2023:  3.606 m.kr.)
  • Hagnaður tímabilsins 4.241 m.kr. (2023: 4.626 m.kr.)
  • Ávöxtun fjárfestingareigna í stýringu 9,4% (2023: 9,0%)
  • Samsett hlutfall 96,2% (2023: 94,6%)
  • Horfur fyrir árið 2025 gera ráð fyrir að afkoma af vátryggingasamningum verði um 1.700 – 2.400 m.kr. og    samsett hlutfall 93-95% 
    • Ekki verða birtar horfur fyrir afkomu af fjárfestingastarfsemi en áætlanir félagsins gera ráð fyrir að ávöxtun fjárfestingaeigna í stýringu nemi 8,5% á ári til lengri tíma miðað við núverandi vaxtastig og fjárfestingastefnu. Þá má ætla að áhrif áfallinna vaxta (vöxtunar) vátryggingaskuldar verði neikvæð um 1.500 m.kr. miðað við óbreytt vaxtastig og stærð vátryggingaskuldarinnar
    • Ekki verður upplýst um frávik frá afkomu af fjárfestingastarfsemi nema þær verði raktar til verulegra breytinga á óskráðum eignum eða á eignasafni

 

Hermann Björnsson, forstjóri:
Rekstrarniðurstaða ársins 2024 endurspeglar afar sterkan grunnrekstur félagsins þrátt fyrir krefjandi umhverfi á árinu, einkum vegna óvenju margra brunatjóna. Rekstur vátryggingastarfseminnar einkenndist af undirliggjandi hagfelldri tjónaþróun, framþróun á þjónustuleiðum og áframhaldandi áherslum á framúrskarandi þjónustu sem skilar sér í mjög góðri rekstrarniðurstöðu og samsettu hlutfalli á árinu miðað við aðstæður. Hagnaður ársins nam 4.241 m.kr. og arðsemi eiginfjár var 17,5%.

Afkoma ársins 2024 af vátryggingasamningum fyrir skatta nam 1.283 m.kr. og samsett hlutfall var 96,2%. Tekjuvöxtur nam 7,4% sem var í takt við áætlanir en minni en síðustu ár en hafa verður í huga að markaðshlutdeild hefur aukist mikið undanfarin ár með heilbrigðum vexti. Áfram verður lögð áhersla á arðbæran og ábyrgan tryggingarekstur með framúrskarandi þjónustu en vöxtur er gjarnan afleiðing þess eins og hefur verið í tilfelli okkar.

Afkoma af fjárfestingastarfsemi fyrir skatta nam 3.435 m.kr. og var ávöxtun fjárfestingaeigna í stýringu 9,4% á árinu. Það er í samræmi við væntingar okkar í upphafi árs en er ánægjulegt í ljósi erfiðra eignamarkaða langt framan af ári bæði á hlutabréfa- og skuldabréfamarkaði. Markaðir tóku við sér á haustmánuðum með lækkandi verðbólgu og væntingum um að vaxtalækkunarferli gæti hafist sem svo varð raunin. Allir eignaflokkar skiluðu jákvæðri afkomu fyrir utan óskráð hlutabréf þar sem stærsta einstaka breytingin var á virði eignarhlutar í Controlant sem var færður niður um 77% á árinu eða um 675 m.kr.

Afkoma á fjórða ársfjórðungi var afar góð en hún nam 2.812 m.kr. Afkoma af vátryggingasamningum var 313 m.kr. og samsett hlutfall var 96,3%. Afkoma af vátryggingarekstri var í takt við væntingar en ber þess merki að tíðarfar var eins og við er að búast á þessum tíma árs. Afkoma af fjárfestingastarfsemi fyrir skatta var mjög góð á fjórðungnum og nam 2.679 m.kr. og var ávöxtun fjárfestingaeigna í stýringu 5,4%. 

Horfur fyrir árið 2025
Á árinu 2025 munum við hér eftir sem hingað til leggja áherslu á arðbæran og ábyrgan vátryggingarekstur. Saga okkar í 10 ár sem skráð félag í Kauphöll hefur sýnt að við höfum staðið undir okkar höfuðáherslu um að vera öflugt arðgreiðslufélag sem byggir á öguðum grunnrekstri, þar sem vátryggingar eru okkar fag.

Horfur fyrir árið 2025 gera ráð fyrir að afkoma af vátryggingastarfsemi fyrir skatta verði á bilinu 1.700 – 2.400 m.kr. og samsett hlutfall 93 - 95%. Ekki verða birtar horfur fyrir afkomu af fjárfestingastarfsemi en áætlanir félagsins gera ráð fyrir að ávöxtun fjárfestingaeigna í stýringu nemi 8,5% á ári til lengri tíma miðað við núverandi vaxtastig og fjárfestingastefnu. Ekki verður upplýst um frávik frá afkomu af fjárfestingastarfsemi nema þær verði raktar til verulegra breytinga á óskráðum eignum eða á eignasafni. Þá má ætla að áhrif áfallinna vaxta (vöxtunar) vátryggingaskuldar verði neikvæð um 1.500 m.kr. miðað við óbreytt vaxtastig og stærð vátryggingaskuldarinnar.

Við gerð áætlunar er stuðst við ýmis opinber gögn, t.d. spár um þróun vísitalna, hagvöxt og áætlaðan ferðamannafjölda. Þá er litið til tjónaþróunar undanfarinna ára auk þess sem áætlað er fyrir tveimur til þremur stórtjónum á árinu.

Tillaga stjórnar um arð
Arðgreiðslustefna félagsins miðar við að greiða að lágmarki 50% af hagnaði hvers árs til hluthafa í formi arð að teknu tilliti til gjaldþols. Samþykkt var á stjórnarfundi í dag að leggja til við hluthafafund að greiða út arð að fjárhæð 3.400 m.kr. eða 2,94 kr. á hlut.

Fjármálaeftirlitið hefur veitt félaginu heimild til endurkaupa á eigin bréfum á árinu 2025 sem byggir á heimild aðalfundar Sjóvár 7. mars sl. Endurkaup munu sem fyrr taka mið af gjaldþolsviðmiðum stjórnar.

Kynningarfundur 6. febrúar kl. 16:15

Markaðsaðilum og fjárfestum er boðið á kynningarfund í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð þann 6. febrúar kl. 16:15. Þar munu Hermann Björnsson forstjóri, Sigríður Vala Halldórsdóttir framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni og Þórður Pálsson forstöðumaður eignastýringar kynna uppgjörið og fara yfir afkomu félagsins. Kynningunni verður jafnframt streymt á slóðinni https://www.sjova.is/um-okkur/fjarfestar/afkomukynning-4f-2024/.
Vilji aðilar bera upp spurningar má senda þær á netfangið fjarfestar@sjova.is fyrir fundinn eða á meðan á fundi stendur og verður þeim svarað í lok kynningarinnar.

Uppgjörsefni verður aðgengilegt á vef Sjóvár www.sjova.is/fjarfestar frá þeim tíma er kynningin hefst og verður upptaka af fundinum aðgengileg á sömu síðu að fundi loknum.

Fjárhagsdagatal
Aðalfundur 2025…………………………………….   13. mars 2025
1. ársfjórðungur 2025…………………………….   30. apríl 2025
2. ársfjórðungur 2025…………………………….   17. júlí 2025
3. ársfjórðungur 2025…………………………….   30. október 2025
Ársuppgjör 2025…………………………………….   12. febrúar 2026

Nánari upplýsingar
Meðfylgjandi er fréttatilkynning, ársreikningur samstæðunnar og fjárfestakynning Sjóvá-Almennra trygginga hf. vegna fjórða ársfjórðungs og ársuppgjörs 2024.

Í samræmi við lög birtir Sjóvá ársreikning á sameiginlegu rafrænu skýrslusniði (e. European Single Electronic Format eða ESEF) og má finna gildandi útgáfu í meðfylgjandi .zip skrá.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving Thorsteinsson í síma 869-8109 eða fjarfestar@sjova.is.

 

Viðhengi



Attachments

Ársreikningur samstæðu Sjóvá-Almennra trygginga hf. árið 2024 Sjóvá - Fréttatilkynning - 4F 2024 Sjóvá - Fjárfestakynning - 4F 2024 213800R3IXBON2LBEI63-2024-12-31-is