Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem tveir flokkar voru boðnir til sölu.
Eitt tilboð að fjárhæð 520 m. kr. að nafnverði barst í flokkinn LBANK CB 29 á ávöxtunarkröfunni 7,48%. Tilboðum að fjárhæð 520 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 7.48%. Heildarstærð flokksins eftir viðbótarútgáfuna verður 17.580 m. kr.
Sextán tilboð að fjárhæð 5.440 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 31 á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,55%-3,63%. Tilboðum að fjárhæð 5.240 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 3,60%. Heildarstærð flokksins eftir viðbótarútgáfuna verður 8.380 m. kr.
Uppgjörsdagur er 16. apríl 2025.
Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A+ með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.
Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 190/2023. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, Fjármögnun Landsbankans - Landsbankinn.
Þessi tilkynning er birt af Landsbankanum hf. og inniheldur upplýsingar sem töldust eða kunna að hafa talist innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum. Tilkynning þessi er gerð af Hreiðari Bjarnasyni, framkvæmdastjóra fjármála hjá Landsbankanum hf., í samræmi við upplýsingaskyldu Landsbankans hf. samkvæmt MAR og 2. gr. framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/1055.